Notandi

Á næstunni

Engir skráðir viðburðir

Könnun

Viltu sjá Stewart Swerdlow 2009?
 
Healer's Handbook: A Journey into Hyperspace
Healer's Handbook: A Journey into Hyperspace


13-Cubed
13-Cubed


Montauk: Alien Connection
Montauk: Alien Connection


Stewart Says
Stewart Says


Hyperspace Helper: A User-Friendly Guide
Hyperspace Helper: A User-Friendly Guide


Stewart Swerdlow
Rithöfundurinn og andlegi leiðbeinandinn kennir sjálfsheilun. Hyperspace, heimur hugleiðslunnar.

 Stewart Swerdlow


Smelltu hér til að hlusta á viðtöl o.fl. við Stewart


Afabróðir Stewarts "Yakob Swerdlow" var fyrsti forseti Rússlands. Hann fyrirskipaði aftöku Romanov ættarinnar. Ætt Stewarts er rakin til víkinga sem settust að í novskudot, í rússlandi í kring um 900. Sagan segir að konung-borið fólk giftist innbyrðis sem olli dreyraveiki, ástæðuna segja menn að snúist um völd, sem er hálfur sannleikurinn. Eins og talað hefur verið um þá hafa kóngar blátt blóð en fæstir vita að það er vegna þess að blóðið hefur hátt koparhlutfall og verður blátt við storknun. Hver er sannleikurinn að baki þessu, hvað hafa þessir hönfundar okkar lífskilyrða "Author-ity" í bígerðum, hvaðan erum við, hvernig hófst líf á jörðunni, hvað er Guð og hvernig er best að hækka tíðni, vitundar og auka jafnvel notkun heilans allt að 90%. Hvað er það sem veldur ótta og óöryggi á meðal fólks og hvað getur svarið verið við því? Hvert erum við að fara og hvernig hyggjumst við lifa lífinu? Þessu og miklu fleira mun Stewart svara í lok mars.

Í 26 ár sá Stewart heiminn sem orkusvið svipað og Neo gerði í MATRIX, hann var blindur á þennan heim eins við sjáum hann. Hann þurfti að gangast undir sérstaka augnað gerð til að sjá tíðni þessa heims eins og við sjáum hann. Saga Stewarts er sveypuð leyndardómsfullri dulúð. Því miður hefur hann upplifað ljótleika heimsins og verið neyddur inn í myrkustu öfl yfirvalda. Þess vegna hefur hann skilning á því sem hann hefur að segja. Hann hefur tileinnkað líf sitt sannleikanum.

Hann var fenginn til starfa fyrir bandarísku ríkisstjórnina í bæð i hernaðarlegum tilgangi og sem tengill. Hann var látinn taka þátt í þróun á varhugaverðri tækni til að stjórna mönnum og okkar sögu. Hæfileikar hans eru slíkir að hann getur hjálpað þér að breyta hugsun þinni og losað þig við slæmar venjur, fjölskyldumunstur, ranghugmyndir og endurritað DNA keðju þína til að leiðrétta hugsun, koma í veg fyrir sjúkdóma ofl. ættgengt. Það þýðir ekki að ljúga að Stewart, hann sér orðin í litum sem er meðal þess sem við menn förum að sjá og skilja betur á næstu árum. Hann sér afhverju þér líður svona, ótti er meðal annars rauður. Það sem hann kennir eru varnir og þekking. Tími hans og samstarfsmanna á vegum ríkisins er alveg ótrúlegur. Því miður halda margir að hernaður og margt sem tengist því sé bara skóli eða námskeið, en undrlagið af slíku er aldrei gott og getur farið mjög illa með menn. Til allra hamingju höfum við íslendingar lítið kynnst slíku en sannleikurinn margþættur.

Það er fátt gott hægt að segja um hernað og þeir sem þekkja til þá eru menn neyddir til ýmissa verka. Mönnum er fórnað til að ná markmiðum yfirvalda. Ein þekktasta sagan er D dagurinn í seinna stríði. Stewart hefur því miður kynnst ljótleika lífsins. Hann var látinn finna fólk sem voru svo neydd í rannsóknir og tilraunir, heilaþvott og pyndingar af ýmsum toga. Hann var forritaður og þessi verk voru þáttur í hans forritun. Menn voru pyndaðir til verka með ótrúlegum aðferðum. Stewart braust út úr heilaþvottakerfi ofuryfirvalda bandaríkjanna og fer nú gegn þessu afli. Hann vinnur nú við að hjálpa fólki. Ef þú telur þig ekki vera undir áhrifum hugarmótandi neyslusamfélags, þá áttu von á óvæntum glaðningi og að geta fengið innsýn inn í friðsælli heim.

Það sem gerir Stewart trúverðugan og einstakan er reynsla beggja heima. Stewart var látinn virkja sköpunarkrafta efnisheimsins með eða af losta, kynkvöt, þrá, ótta og fullnægingu.

Á rannsóknarstofu leiddu þeir, Stewart og aðstoðarmenn hans saman ungt fólk í kynferðislegum tilgangi, sem okkur sýnist ósiðsamlegt, nokkuð sem okkur var kennt að eiga ekkert við. En þú átt eftir að vakna, kæri lesandi og átta þig á því hvað er að gerast. Unga fólkið í Montauk verkefninu voru leidd saman gegn þeirra vilja, heilaþvegin og pynd til að skapa orku sköpunakrafts alheims. Orkan var skönnuð og safnað saman og mögnuð upp með gríðarlegri raforku sem var svo aftur stýrt gegn heilmyndarvarpanum "það sem við sjáum" á þröngu sviði til að beygja tímann og bora gat á milli tíðnisviða. Mundu, heimurinn er skapaður af okkur og því sem við trúum. Við erum að átta okkur smá saman á því að við erum ekki bara líkami og hvernig þessi heimur er tilkominn.
Ef þú skilur þetta video hér fyrir neðan, og hvað er að gerast þar, þá ertu farin að átta þig á möguleikum mannsins í efnisheiminum.

Eftir að Stewart vaknaði af vondum draumi sem gékk út á að yfirvaldið hefði rétt fyrir sér og að ótakmörkuð valdgræðgi væri hættuleg þróun manna og að verkefnin væru í raun ekki unnin í þágu fólksins, þá snéri Swerdlow við blaðinu og ákvað að nota sína þekkingu til að auka okkar skilningi á lífinu. Því það sem mannkynið gæti átt í vændum getur verið erfiður tími af völdum þess illa. Við mennirnir höfum tækifæri á að breyta rétt.

Hans fræði byggja á mætti þekkingarinnar og trúar, og okkur nánast áður óþekktann yfirvitskilegan kraft hugans. Því með þekkingu og vilja geta menn hafnað því sem á fyrir okkur að lyggja. Þeir sem átta sig á hvað hér er á ferð sjá að biblína er handrit um baráttu þess góða og illa, við höfum valið. Þekking er máttur og víðsýni er viska.

Nútíma skólakerfi hefur ekki haft bolmagn né þekkingu til að auðga hæfileika einstaklingsins út frá forsendum kennslustefnunnar. Kerfið eins og það má heita byggir á efnahag og öllu sem miðar að árangri í þeim efnum. Kerfið vinnur ekki með því að einstaklingurinn sé skapandi og kærleiksríkur. Samkeppni er það fyrsta sem við lærum. Þess vegna eru fáir einstaklingar sem ná að hækka tíðni hugans upp fyrir tíðni hjartastöðvarinnar. Kerfið þrýstir öllum sem taka við þess boðum að vinna á þremur lægstu orkustöðvum líkamans. Það má segja að samnefnari nútímans sé samkeppni og ótti. Stewart vann við rannsóknir á sviði sköpunarkrafts Guðs og manna. Eitt af því sem varpað er með ýmsum leiðum yfir mannkynið er ótti. Stewart er hvað fróðasti einstaklingur sem fær að segja frá leyndarmálum alheims-ríkisstjórna, hvað þeim gengur til, afhverju þeir fara í stríð, afhverju eru terroristar, á hverju þrífast fjölmiðlar og hverjir eiga þá.

Stewart býður okkur aflausn þungra hugsana með þekkingu.

Stewart verður með einkatíma og mun fjalla um:

  • Eflingu hugans, á námskeiðinu auka menn við skilning og notkun hugans frá 30% til 90%
  • Hraðvirkari heilunaraðferðir og sjálfsheilun
  • Forritun DNA kódans, losa gamalt fjölskyldumynstur
  • Stóri sannleikurinn um lífið
  • Máttur hugans
  • Saga heimsins

Hvernig kom þekking Stewarts til?

Árið 1900 var Nicolai Tesla einhver afkastamesti uppfinningamaður okkar tíma á sviði rafmagns og orkunýtinga að þróa segulnema, svo kallaðan "Tesla Coil" sem hlóð upp rafeindir af náttúrlegum jarðarpúls. Þessi púls kemur af heilmyndasendi alheims sem orsakar alla krafta eins og segulsviði jarðar, 7.85htz. Það sem hann vissi ekki var að hann var að tengjast tíðnisviði þessa heims þar sem upphaf alheimsins verður til, það sem skapari alls er kenndur við, hjarta alheimsins sem líkja má við suðupott ljóseinda og orku. Þetta rými eða orkusvið kalla ég regluverk "Stewart Swerdlow kallar þetta Godmind" og vinnur samkvæmt reglum líf-eðlisfræðinnar, orku og tíðni, sem skilar róteindum, nifteindum, rafeindum, atómum og sameindum inn í regluverkið þar sem allt efnislegt verður til.

Það eru margir heimar.
Þegar þú ferð á internetið með þráðlausum hætti, þá máttu hugsa til Tesla. Þú sérð öll þessi Internet-undur þótt þau komi með ósýnilegum hætti. Efastu enn um annan heim? Til að gera langa sögu stutta, þá var Tesla einnig að þróa þráðlausa rafmagnssenda og viðtaka, þar á meðal útvarpsbylgjur og móttaka. Þar sem hann var fyrstur þá var enginn hér á jörðu með sendi né viðtæki. Það undarlega varð úr þessu að hann og fleiri af hans aðstoðarmönnum vitnuðu um það að raddir heyrðust í viðtæki hans. Þessar óþekktu raddir voru að vara hann við því sem hann var að gera, rjúfa og kveikja á alheimsorkumóttaka sem tengdist inn í heilmyndasendinn, upphaf alls veraldlegs. Þetta gerði hann með "prímitívum" takmörkuðum búnaði. Málið þróaðist á þann veg að Eisenhover forseti óskaði eftir fundi með honum til að fá útskýringu á þessum röddum sem heyrðust í viðtækinu.
Í framhaldi var skipuð nefnd sem var send á fund með sendinefnd þriggja stjörnubelta. Fundurinn fór fram á flugmóðurskipi á Atlantshafi. Umræðan um tilganglífsins og hvaðan þeir kæmu osfrv. þróaðist yfir í viðskipta samband.
Þar sem reglur háþróaðra lífsstofna ganga út á að skipta sér ekki að plánetum eins jörðinni sem eru í þróun, var samið um takmarkað samband og urðu með því tímamót í sögunni. Ríkisstjórn bandaríkjanna sá fram á fjárhagslegar þrengingar og óskuðu eftir aðstoð til að hleypa lífi í efnahagsmálin. Það sem hinir lögðu til var að stofna til iðnaðar með því að nota kjarnorku til að bræða málma. Við fengum tækni, vopn og fleira frá þeim gegn því að þeir fengu einhverja tækni og að mega gera rannsóknir á mönnum. Við mennirnir stóðum reyndar ekki við allar efndir sem gerði gestina lítt káta.

Þrátt fyrir þennan fund og nýjungar þá dugði það ekki til að bjarga efnahag bandaríkjanna. Eins og menn vita þá féll efnahagur bandaríkjanna saman árið 1927. Það gerðist vegna aðgerða Rothchild fjölskyldunnar sem náðu undirtökum bandaríska bankakerfisins með undirlægjuhætti. Þeir lánuðu mönnum vaxtalaust til hlutabréfakaupa, gegn þeirri forsendu að mega innleysa skuldabréfin þegar þeim hentaði. Lánið þurfti að greiðast inna 48 stunda. Eins og eðli okkar barnalegu manna er þá munum við sjaldan eftir að hætta þegar gamanið stendur sem hæst og leggja fyrir eða leysa út hagnaðinn á réttu augnabliki. Menn verða ekki ríkir af hlutabréfum nema að leysa hagnaðinn út á réttum tíma. Með öðrum orðum selja á réttum tíma eða eiga hlut í félagi sem greiðir riflegan arð. Þetta olli því að sjóðir ríkisbankanna fluttust yfir til Evrópsættuðu Rauðskjaldanna og bandaríska hagveltuhjólið stöðvaðist.

Stríð var í aðsiglingu og bandaríkjamenn stóðu frami fyrir enn einum vandanum.

1943

Þjóðverjar voru að reyna að svelta bandamenn bandaríkjanna í bretlandi með árásum á flutningaskip og eins og við munum eftir, þá sukku mörg okkar fiskiskipa á Atlantshafinu á þessum árum. Menn áttu fá svör við U-bátum þjóðverja og var floti bandaríkjanna kominn niður í 50%. Þess vegna voru menn farnir að leita annarra úrræða.

Hugmyndir um að láta hluti hverfa fær hljómgrunn, byggt á Afstæðiskenningu Einstein

Þeir báðir Tesla og Einstein voru sammála um að allir hlutir hafa sérstaka orku í tíma.

Hlutir breytast, oxiterast og breyta tíðni dag frá degi. Með því að nota segulsvið með neikvæðri "Andheilmyndarorku" orku og mikilli rafmagnsspennu er hægt að snúa heilmyndarafli alheims við og senda sandinn sem glerglas stendur saman úr aftur í tíma, fyrir tíma bræðslunnar með því að breyta heilmyndar-tíðni glasins eða tíðni staðs sem glasið stóð á eða mun síðar standa á. Heimurinn er heilmynd "Holograph" við lifum í draumi, það sannast með þvi sem kemur hér á eftir. Öll þessi rit um að tími sé afstæður, samliggjandi heimar, fleiri en einn heimur og skilningur manna er bundin við samhljóm vitundar.

Heimurinn er vitund.

Við erum ekki bara líkami, það verður allt til í huganum. Hugurinn er einhver voldugasti máttur heims, við þekkjum ástina sem dæmi, þótt fáir skilja í dagvitund. Menn eru smá saman að komast í meiri sannleika um upphaf lífs og manna. Það útskýrist í grófum dráttum hér. Þú þekkir það þegar þú hugsar jákvætt þá færðu jákvæð viðbrögð frá öðrum, einfaldast er að brosa og fá bros til baka. Þetta heitir að breyta heiminum, þínum heimi, þinni vitund. Því sem við trúum er sannleikur hvers og eins. Við mennirnir búum í takmörkuðum og vanþróuðum heimi efnis ef borið er saman við andlegan heim, því ímyndunaraflið er stærra en nokkur getur ímyndað sér. Við getum skapað heila veröld með ímyndun, það gerist að hluta til í Hyperspace. Allt sem við sjáum er skilgreint samkvæmt guðlegri vitund sem við erum partur af. Áður en við fæddumst var heimurinn ekki til.
Í upphafi var ekkert og því leiddist, því skapaði það guð. Guð skapaði svo heiminn sem við leikum okkur í. Við í guðlegri vitun sem ljóseind að heildinni bjuggum til heim sem var takmarkaður og staðbundinn í föstuformi, þetta var draumur um stað sem við bjuggum til sem má líkja við róluvöll í augum lítilla barna, veröld til að þroskast á sviði tilfinninga. Við ákváðum að skapa heim eða samþykkja reglur guðs sem byggir á orku, rafeindum, allra efna atóma og tíðnisviða.

Allt sem þú sérð, samþykkir dagvitundin sem býr í þessum takmarkaða heimi. Dagvitundin samþykkur allt sem þú sérð hvort sem það er stál eða gler mótað af mönnum en það er skapað af heildinni, okkur "vitund, snertingu, sýn, önnur skynfæri" og Guði. Þegar þú heldur á glasi þá veit yfirvitund þín allt um hvað glasið er gert úr og það sem er í glasinu. Ef glasið brotnar þá býrðu þú til niðurstöðuna, þú jafnvel braust glasið af því þú vildir svörun heimsins, þinnar vitundar, ótta, þroska, reynslu, vandræði af því að þú varst kannski í vondu skapi eða óttaðist hreynlega að brjóta glasið. Þá varstu að nema boð æðri vitundar og jafnvel óttaðist ætlun æðri vitundar. Þegar glasið brotnar þá búum við brotin til samkvæmt guðlegum reglum lífeðlisfræða sem vinna innan reglna sköpunar heims sem við erum öll partur af. Þegar menn átta sig á þessu þá átta þeir sig einnig á því að við erum öll eitt, við erum af sama stofni. Þegar þú talar við ættingja eða ókunnugan mann, þá ertu í raun að tala við sjálfan þig. Þess vegna þurfum við menn að læra hvaðan fordómar koma. Daginn sem þú færð fullkominn frið innra með þér er sá dagur þegar þú ferð að bera brenn heita ást gagnvart ókunnri manneskju, þótt hún sé ófríð og leiðinleg af þínu viti, dagviti. Þegar þú getur neytt dagvitundina til að henda út öllum áhrifum fjömiðla og fordóma þá finnurðu frið, það er kjarni málsins. Tilfinningin er einstök og skrítin, hreinlega þægileg.

 Viðtal við Stewart og Janet
Útvarpsmaðurinn Michael HautzagerÚtvarpsmaðurinn Michael Hautzager tók viðtöl við nokkra af sérfræðingum Montauk verkefnisins árið 1995. Þar sem tímaflökkunarvélin var í brennidepli.
Einn af viðmælendum hans hét Alfreð Bielek, hann var reyndar skýrður Edward Cameron en minnið var þurrkað út og honum gefið nýtt nafn og saga. Þeir sem hafa séð kvikmyndina "The Island" vita hvað ég er að fara.
Hann eins og flestir hinir, Preston Nicols, Larry, Duncan og Stewart fengu minnið aftur og þá hófst ævintýrið. Menn voru að missa vitið, margir gerðu það og vissu ekki á hvaða heim þeir áttum að trúa. Al Bielek sagði að þegar hann sá myndina Philadelphia Experiment þá hefðu minnistöðvar gamla tímans kviknað. Fyrstu tuttugu mínúturnar af myndinni segir söguna eins og hún var. Bielek sá atburðarrás myndarinnar og fékk þessa undarlegu tilfinningu um annan veruleika. Hann sagði að lífið hefði allt í einu tekið nýja stefnu. Hann mundi að hann átti konu og barn. Þá hófst nýtt tímabil hjá honum, það sama gerðist hjá hinum. Þeir hittust fyrir tilviljun á hernaðarlegri sýningu í Florida. Þeir gengu að hvorum öðrum og nefndu hvorn annan með nafni en töldu sig aldrei hafa hist. Þegar þeir fóru að bera bækur saman sínar, kom ýmislegt undarlegt í ljós.

The Time TunnelHvaðan haldið þið að þessar sögur komi, Matrix, Stargate, TimeTunnel ofl?

Þótt ég hafði oft heyrt söguna um Montauk verkefnið þá trúði ég henni ekki eins og ég gerir ráð fyrir að þú gerir kæri lesandi.
En það sem vakti áhuga minn á þessari ótrúlegu sögu sem er eins og skáldsaga, var að Alfred Bielek sem hefur haldið fyrirlestra um hans líf út um allan heim, sagði nákvæmlega frá því hvernig forseta kosningarnar árið 2000 milli Al Gore og Bush fóru fram. Það var talið þrisvar sinnum upp úr kössum og fjölmiðlarnir vissu ekki hver var forseti, því ein stöðin sagði Gore og aðrar sögðu Bush. Málið endaði fyrir þingi. Al Bielek sagði frá þessu árið 1995 í viðtali við Hautzager, Al eða Alfred er maðurinn sem lenti ásamt núlifandi bróður sínum inn í framtíðinni. Við tveggja ára dvöl í þúsund ára ríkinu lærði hann hvað jafnræði er og óttalaust samfélag gerir. Þessu lýsti hann nákvæmlega, fljótandi "svífandi" borgir þúsund ára ríkisins sem talað er um í Biblíunni. Þessi nokkurra daga seria af viðtölum er einhver mesti vísindatryllir okkar tíma. Á meðal þeirra viðmælenda var Stewart Swerdlow.

Houtzager hér á myndinni fyrir ofan, í miðið, tók viðtal við hjónin Stewart og Janet Swerdlow sem hafa heitið mönnum að boða sannleikann um lífið og möguleika hugans. Því að það sem við trúum er summan af okkar veruleika. Við getum lært að elska burt hatur og ótta með þekkingu.

Þekking Stewarts
Ég get reynt með mörgum orðum að útskýra sögu Stewarts og þeirra hernaðarlegra verkefna sem hann var neyddur til að vinna. Sagan er ekki falleg en fyrir það helsta með því furðulegra sem menn geta ímyndað sér. Tæknin og kraftarnir sem voru virkjaðir eru okkur almennum mönnum algjörlega hulinn heimur enda fengum við menn aðstoð annarstaðar frá til að ná tökum á tækninni.Hjónin Stewart og Janet Swerdlow
Eftir að tundurspillirinn USS Eldrige var sendur úr þessum tíma inn í Hyperspace þá breyttist okkar saga meira en menn þora að nefna. Það skal tekið fram að við hvetjum þig lesandi góður að líta á þetta sem skáldsögu en lestu og auðgaðu þinn skilning til að þekkja. Við skiljum bara það sem okkar þroski leyfir.
Þegar tilraun Einsteins og Tesla heppnaðist kom ýmislegt í ljós sem menn sáu ekki fyrir. Menn dóu en þó ekki allir. Þeir sem sluppu voru m.a. Cameron bræður. Það eru mörg núlifandi vitni sem segja þessa sögu. Stewart og hans sérstöku hæfileikar til að skilja orkusvið alheims var settur með þrýstingi í að taka þátt í að leysa þrautina að ná mönnunum aftur úr skipinu. Því að þegar tækin í skipinu sem ullu því að skipið hvarf, voru sett í gang, brunnu rofar og stýritæki saman vegna mikillar spennu á rafverki búnaðarins. Þeir bræður gátu ekki slökkt á búnaðinum með sömu aðferð og þeim var kennt. Af ótta yfirmanna hersins við að svið skipsins gæti haft áhrif á okkar heim þá hófst örvæntingarfull tilraun við að leysa þrautina frá grunni. Til þess þurftu þeir að ná fullum tökum á lögmálum heims. Þeir Cameron bræður voru sóttir og sendir til baka til að slökkva á búnaðinum. Undanfari þess tók fjörtíu ár og var Stewart einn af þeim sem vann það óskemmtilega verk að virkja sköpunarkrafta alheims með mætti hugans og manna. Þetta voru óhugnarlegir tímar. Í fyrstu viðurkendi ríkisstjórnin verknaðinn en þegar Montauk verkefnið þróaðist yfir í "Mind-control for the masses" þá sögðu menn að þetta yrði að stöðva því tæknin gæti verið notuð gegn þingi. Ein af skráðum tilraunum sem vitað er um var símanúmer sem var sent með ELF bylgjum í Florida. 60.000 mans hringdu í tiltekið símanúmer án þess að hafa hugmynd af hverju. Þetta er vitað. Það næsta sem gerðist er að menn fóru að leika guði og fóru að breyta sögunni með því að fara aftur í tima og breyta niðurstöðum borgarastríðsins úr sigri suðurs í sigur norðurs sem var blökkumönnum í hag. Eiga við Rómverja, þeirra valdatími var styttur, borgarastríðið var látið enda á báða vegu, þjóðverjar fengu að vinna stríðið eitt sinni, Jesús kom við sögu, Napóleon, framtíðin og fleira furðulegt. Það sem þessi stjórnvöld eru að undirbúa, er sameining allra trúarbragða með endurfæðingu Jesús. Markmiðið er að sameina alla menn í einni trú og einni ríkisstjórn. Jesús er lifandi, en ekki sá sanni. Markúsabréf talar um að fylgja ekki nokkrum manni þótt hann sé sagður í borg þar sem allir sjá hann, en fylgið honum ekki. Þetta er endurtekið í Biblíunni á nokkrum stöðum. Það sem við mennirnir þurfum að gera er að auka vitund og skilning á lífinu. Okkar vopn er að hafna þessum heimsvalda herrum og trúa á annan heim. Þá er spurningin, hvernig heim viljum við. Til þess að vita það, þá þurfum við að þekkja þennan heim. Til þess er Stewart kominn til að kenna okkur og vara okkur við því sem er að gerast. Við erum öll of upptekin við daglegt amstur til að geta haft tíma til að átta okkur á hlutunum. Við þurfum að vakna, sannleikurinn er að skýrast.

Það er mín kenning og margra annara að jörðin og menn eru að þróast yfir í fínni tíðni, það er svipað og að skipt sé um rás á sjónvarpi þar sem allt fer í snjó og óreiðu en skýrist svo enn betur með frið og ró á eftir. Þessi heilmyndafræði sem fáir þekkja byggir á að heimurinn er í einni útsendingartíðni en vegna þenslu heimsins og hreyfingu alls, þá er jörðin að fara í nýtt belti annarrar tíðni. Það breytist allt með því. Jörðin fer úr þriðja þéttleika yfir í þann fimmta. Við það hækkar tíðni okkar því við erum ein heild. Með því munum við menn fá nýtt "belive system" og annan skilning á lífið þar sem ríkir skilningur og friður. Það er eins og jörðin og okkar veruleiki sé að fullorðnast með því að fermast. Kynnið ykkur einnig fyrirlestra og ókeypis lesefni eftir Alex Colier ofl. sem er fáanlegt á netinu, það er kominn tími til að vakna. Bækur Gary Renard, The DISAPPEARANCE OF THE UNIVERSE er merkileg lesning. Hvað sagði Jesús með sannleikann? Ef einhver spyr, hvað er til ráða og hvað tekur við, þá er til svar við því. Eitt af því er að læra að trúa, fyrirgefa þér og elska. Ef þú veist að það á ekki að dæma aðra, þá fyrirgefurðu þér og hættir að dæma. Trúðu ekki á efnið, taktu hugann af lífsgæðakapphlaupinu, því með því siturðu eftir í þriðja þettleika innan skamms tíma. Sá heimur verður sem helvíti valdníðinga og eftirlist sem þú hefur aldrei þekkt. Það er heimurinn þar sem einræðisstjórnin fer með heimsvöld í hátækni-samfélagi og menn verða fangelsaðir fyrir ranga hugsun. Sú tækni er fyrir hendi að geta mælt hugsanamunstur og breyta því í orð. Sú þingsályktunartillaga býður samþykkta bandaríkjastjórnar. Til þessa alls notar NSA gerfihnetti ásamt ótrúlega óhugnarlegri tækni sem truflar margt af því sem við trúum á, spámiðlar fá blönduð misvísandi skilaboð. Kynntu þér söguna, vaknaðu, kannaðu hvað varð um nasistana, hvaðan kom LSD og til hvers var það notað, hvað var MK-Ultra, hvað var project paperclip, hverjr fjármögnuðu þjóðverja, lifði Hitler til 1993? Hvað er að gerast í þögninni.

Það sem þessi þekking á að fær þér er meiri skilningur á lífinu, kenndum manna og hreyfiafli hagkerfisins. Í fyrstu finnurði til ótta en fljótlega færðu skilning og frið því þú ert að losa þig við gamalt forrit sem hefur fullt af óútskýrðum tilgátum um lífið. Spurningar sem þú hefur alltaf spurt en aldrei fengið svör við. Þú ert að fullorðnast í trú og skilningi á lífið sem færir þér kyrrð. Þegar þú hættir að öfunda, þá ertu farin að skilja. Þegar þú ert farin að skilja, þá ferðu að fyrirgefa þér og öðrum því það er leið sannleikans inn í heim kærleikans sem við höfum reynt að kaupa en aldrei fengið afgreiddann. Því hann er ekki af þessum heimi sem okkur er gert að trúa á.

Sjá meira um Stewart Swerdlow